Brunalokur

From
Jump to: navigation, search

Almennt

Brunaloka með mótor

Brunalokur eru byggðar inn í loftræsistokka til að koma í veg fyrir dreifingu elds og reyks milli brunahólfa.

Stöðu hverrar brunaloku er stýrt frá iðntölvu og merki um stöðu hverrar loku er vaktað. Í sumum tilfellum eru tvær brunalokur tengdar saman, þeim er stýrt og þær vaktaðar með sameiginlegum merkjum frá iðntölvu.


Tenging við stýrikerfi

Yfirlit yfir brunalokur tengdar við eina stýrivél

Í skjámyndakerfinu er hægt að sjá tengimynd fyrir brunalokur, hér sést hvaða brunalokur eru tengdar við hvaða stýrivél.

Stýring

Svo lengi sem brunastöð gefur merki um að allt sé í lagi (lokuð snerta frá brunastöð til iðntölvu) er brunalokunni haldið opinni. Um leið og brunastöðin gefur eldboð er brunalokum lokað.

Endarofar á brunalokum gefa iðntölvunni merki um hvort brunalokan sé í tilætlaðri stöðu. Ef loka á að vera opin en hún gefur ekki merki frá endarofa um opna stöðu eru gefin bilunarboð. Sama gildir ef loka á að vera lokuð og hún gefur ekki merki frá endarofa um lokaða stöðu. Loka sem er opin samkvæmt skipun er sýnt með ljósgrænum lit. Loka sem er lokuð samkvæmt skipun er sýnd með mosagrænum lit. Loka sem ekki er í þeirri stöðu sem til er ætlast er sýnd með rauðum lit og viðvörun er gefin í skjámyndakerfi.

Prófun

Allar brunalokur eru prófaðar reglulega. Þetta er gjarnan forritað til að gerast einu sinni í viku og eru þá brunalokur keyrðar í báðar endastöður. Ef önnur endastaðan skilar sér ekki er gefin viðvörun í skjámyndakerfinu. Þá þarf að hafa samband við loftræsiverktaka og hann beðinn um að skoða viðkomandi brunaloku, hún gæti hafa keyrt sig fasta eða einhver aðskotahlutur í loftræsistokki hindrað hreyfinu hennar.

Ef netsamband við stjórnskáp hefur fallið út getur komið fram viðvörun frá brunalokum á þeim skáp. Þá er venjulega um að ræða "Bilun í lokun" vegna þess að kerfið hefur ekki keyrt regulegan prófunarferil. Hægt er að endursetja þessa bilun með því að smella á viðkomandi brunalokusetti og keyra handvirka prófun.

Sjá nánar um samskipti í netkerfi.


Grunnmynd

Grunnmynd sem sýnir brunalokur

Á grunnmynd byggingar sést staðsetning hverrar brunaloku ásamt stöðu hennar og kerfisheiti. Hægt er að þysja inn í grunnmynd með því að halda inni ALT-hnappi á lyklaborði og skruna með músarhjólinu. Hægt er að draga grunnmyndina til með því að halda inni ALT-hnappi og draga myndina til með músinni. Sjá nánar grein um grunnmyndir.


Nánari skoðun

Sprettigluggi fyrir brunalokur

Hægt er að smella á hverri brunaloku, bæði í kerfismynd og grunnmynd, og kemur þá upp sprettigluggi fyrir viðkomandi loku. Í sprettiglugganum sést staða lokunnar og ef hún gefur bilunarboð kemur fram hvaða endarofi er ekki að skila sér. Hægt er að keyra prófun á lokum handvirkt með hnappi í sprettiglugganum, þá keyrir lokan í báðar endastöður. Stundum er hægt að leysa úr bilunum með því að handkeyra prófun á lokum og hefur í slíkum tilvikum lokan líklega keyrt sig fasta en losnar oftar en ekki.

Þegar ýtt er á prófunarhnapp verður hann grænn á meðan prófunarferillinn gengur. Innan þessara tveggja mínútna á viðkomandi brunaloka að hafa keyrt í báðar endastöður. Ef brunaloka nær ekki annarri endastöðunni kemur fram í glugganum hvor endastaðan næst ekki.