Skjámyndakerfi

From
Jump to: navigation, search

Skjámyndakerfi er andlit hússtjórnarkerfisins. Skjámyndakerfi (einnig kallað kerfiráður) er hugbúnaður sem keyrir á tölvu eða sýndarþjóni og í þessu kerfi geta notendur séð lifandi gildi frá ýmsum tæknikerfum, hægt er að breyta óskgildum, skoða og greina viðvaranir, skoða síritun/línurit (trend) rekstrarstærða og fleira.

Sjá ítarlegri umfjöllun í annarri grein.

Scada01 forsida.PNG

Skjámyndakerfi frá Iðnaðartækni eru yfirleitt byggð upp eins og sést á myndinni til hægri:

  • Í valstikunni til vinstri er hægt að velja mynd til að skoða
  • Á miðfletinum er valin kerfismynd sýnd
  • Í hægri stikunni eru upplýsingar um hvaða kerfi er til skoðunar, hvar kerfið er staðsett í byggingunni, nýjustu viðvaranir
    • Með því að smella á lógói viðskiptavinar efst í hægra horni fer maður beint á forsíðu
Scada02 kerfismynd.PNG

Á neðri myndinni hægra megin er dæmigerð kerfismynd fyrir hitakerfi. Nánari leiðbeiningar um notkun skjámyndakerfis er að finna í bálki um kerfiráð.

Hugbúnaðarleyfi

Skjámyndakerfið er leyfisskylt og fara þarf með gát ef tölvan sem kerfið keyrir á er flutt. Sjá nánar í kafla um kerfiráð.