Síritun

From
Revision as of 14:19, 13 February 2024 by Kristjan (talk | contribs) (Flytja út gögn)
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to: navigation, search
Gluggi til að skoða gagnaskráningar

Kerfið býður upp á að gagnaskráningar séu skoðaðar frá gangsetningu kerfisins. Öll helstu mæligildi og stýrimerki eru skráð í sífellu. Þessar upplýsingar eru geymdar í gagnagrunni og er hægt að skoða þær á kerfiráðnum. Með því að smella á hnappnum Skráningar í vinstri valstikunni opnast skjámynd með línuriti. Hægt er að velja nokkur mismunandi skráningarsett með hnöppum sem eru undir línuritinu. Nokkrar sekúndur geta liðið þar til valið kerfi kemur upp á skjáinn vegna þess að stutta stund tekur að lesa upp úr gagnagrunni. Haldið er utan um þróun stýrimerkja nokkur ár aftur í tímann.

Á skráningamynd er hægt að beita ýmsum leiðum til að greina betur það sem fyrir augu ber:

  1. Smella á myndfletinum og fá upp lóðrétta línu. Í upplýsingaglugganum undir línuritinu kemur þá fram nákvæmt gildi á hverjum ferli á þeim tímapunkti sem valinn er
  2. Tvísmella á myndfletinum til að skruna fram og aftur í tímann (nota örvar á tækjastiku) og til að þysja inn (halda inni SHIFT og velja myndbrot til stækkunar).
  3. Tvísmella á tímaásnum til að stökkva beint á ákveðna dagsetningu eða til að breyta lengd tímabilsins sem skoðað er hverju sinni.
  4. Hægrismella á penna í listanum undir myndinni til að fela penna (Options - Visible), gera penna feitletraðan (Edit - Width) eða breyta pennum á annan hátt.


Flytja út gögn

Útflutningur gagna

Hægt er að flytja gögn úr skráningaglugganum í textaskrá ef óskað er eftir nánari skoðun, t.d. í töflureikni. Til þess að flytja út gögn er hægri-smellt á myndfletinum (í eldri kerfum tvísmellt á myndfletinum) og í valmyndinnier valið Export Data (í eldri kerfum er ýtt á takkann Statistics í tækjastikunni sem kemur upp). Því næst er textaskrá (CSV-snið) vistuð með því að smella á Save. Hægt er að afrita skrána frá kerfiráði yfir á eigin PC-tölvu notanda þar sem hægt er að vinna frekar með CSV-skrána, t.d. með Excel aðgerðinni Text to Columns.