Síritun

From
Jump to: navigation, search
Gluggi til að skoða gagnaskráningar

Kerfið býður upp á að gagnaskráningar séu skoðaðar frá gangsetningu kerfisins. Öll helstu mæligildi og stýrimerki eru skráð í sífellu. Þessar upplýsingar eru geymdar í gagnagrunni og er hægt að skoða þær á kerfiráðnum. Við helstu reglunarslaufur er tákn með grænum hring og með því að smella á tákninu opnast línurit fyrir viðkomandi ferli. Stóra línuritið sýnir gögn fyrir síðasta sólarhring og litla línuritið fyrir neðan sýnir samantekt síðustu viku.

Á skráningamynd er hægt að beita ýmsum leiðum til að greina betur það sem fyrir augu ber:

  1. Draga lóðréttu bláu línuna til að fá tölugildi á ákveðnum tímapunkti.
  2. Draga gráa svæðið í litla línuritinu til að skoða nánar gögn á ákveðnum tíma síðustu viku.
  3. Draga dökkgráu jaðra gráa svæðisins í litla línuritinu til að minnka eða stækka tímabilið sem sýnt er í stóra línuritinu.
  4. Draga litla línuritið til til þess að sjá lengra aftur í tímann.
  5. Kveikja og slökkva á einstökum línum með því að breyta hakinu fyrir framan viðkomandi breytu í neðsta glugga myndarinnar.
  6. Hægrismella í stóra línuritinu til að fá upp ýmsar aðgerðir (prófið ykkur áfram).


Flytja út gögn

Útflutningur gagna

Hægt er að flytja gögn úr skráningaglugganum í textaskrá ef óskað er eftir nánari skoðun, t.d. í töflureikni. Til þess að flytja út gögn með því að hægri smella í stóra línuritinu og í valmyndinni er valið Export Data (í eldri kerfum er ýtt á takkann Statistics í tækjastikunni sem kemur upp). Því næst er textaskrá (CSV-snið) vistuð með því að smella á Save. Hægt er að afrita skrána frá kerfiráði yfir á eigin PC-tölvu notanda þar sem hægt er að vinna frekar með CSV-skrána, t.d. með Excel aðgerðinni Text to Columns.