Dælur
Stýrimerki til og frá iðntölvu eru yfirleitt tengd við jaðartæki með stýristrengjum. Þetta eru stundum kölluð harðvíruð merki eða I/O (æjó - Input/Output) merki. Inngangsmerki til iðntölvu segja til um stöðu jaðartækja en útgangsmerki frá iðntölvu gefa skipanir til jaðartækja. Stýrimerkjum er skipt í stafræn og hliðræn merki:
- Stafrænt merki er annað hvort af eða á (0 eða 1)
- Hliðrænt merki er "stiglaust" og getur verið hvar sem er á bilinu 0-100%