Viðvaranir
Virkar viðvaranir
Þegar bilun verður í kerfinu þá birtist rauður kassi í valstikunni til vinstri og lýsing bilunar í hægri stiku. Með því að velja Þjónustumyndir - Virkar Viðvaranir (eða smella á hnappnum "Viðvaranir") er farið inn í lista yfir virkar viðvaranir. Í þessum lista kemur fram hvaða viðvörun er virk, hvenær hún varð virk, útskýring á því hvað hefur gerst og hvað er til ráða. Þegar viðvörun hefur verið greind og leyst úr vandamálinu hættir viðvörun að vera rauð og hún verður hvít. Til að losa gamla viðvörun af skjánum er tvísmellt á henni og skrifaðar glósur um ástæðu bilunar og mögulega lausn.
Stýring
Hægt er að skoða eldri viðvaranir með því að smella á hnappnum "Eldri viðvaranir" undir listanum. Á myndinni sem þar kemur upp er hægt að framkvæma ýmiss konar greiningu á viðvörunum, tíðni þeirra og tíma. Þetta er gert með því að hægri-smella á listanum (eða tvísmella í listanum) og nota tækjastikuna sem þá kemur upp.