Skjámyndakerfi
Skjámyndakerfi er andlit hússtjórnarkerfisins. Skjámyndakerfi er hugbúnaður sem keyrir á tölvu sem kölluð er kerfiráður (raunveruleg tölva eða sýndarþjónn) og í þessu kerfi geta notendur séð lifandi gildi frá ýmsum tæknikerfum, hægt er að breyta óskgildum, skoða og greina viðvaranir, skoða síritun/línurit (trend) rekstrarstærða og fleira.
Skjámyndakerfi frá Iðnaðartækni eru yfirleitt byggð upp eins og sést á myndinni til hægri:
- Í valstikunni til vinstri er hægt að velja mynd til að skoða
- Á miðfletinum er valin kerfismynd sýnd
- Í hægri stikunni eru upplýsingar um hvaða kerfi er til skoðunar, hvar kerfið er staðsett í byggingunni, nýjustu viðvaranir
- Með því að smella á lógói viðskiptavinar efst í hægra horni fer maður beint á forsíðu
Á neðri myndinni hægra megin er dæmigerð kerfismynd fyrir hitakerfi. Nánari leiðbeiningar um notkun skjámyndakerfis er að finna í bálki um kerfiráð.
Hugbúnaðarleyfi
Skjámyndakerfið er leyfisskylt og fara þarf með gát ef tölvan sem kerfið keyrir á er flutt. Sjá nánar í kafla um kerfiráð.