Skjámyndakerfi

From
Revision as of 09:33, 14 November 2022 by Kristjan (talk | contribs)
Jump to: navigation, search

Skjámyndakerfi er andlit hússtjórnarkerfisins. Skjámyndakerfi er hugbúnaður sem keyrir á tölvu (raunveruleg tölva eða sýndarþjónn) og í þessu kerfi geta notendur séð lifandi gildi frá ýmsum tæknikerfum, hægt er að breyta óskgildum, skoða og greina viðvaranir, skoða síritun/línurit (trend) rekstrarstærða og fleira.

Scada01 forsida.PNG

Skjámyndakerfi frá Iðnaðartækni eru yfirleitt byggð upp eins og sést á myndinni til hægri:

  • Í valstikunni til vinstri er hægt að velja mynd til að skoða
  • Á miðfletinum er valin kerfismynd sýnd
  • Í hægri stikunni eru upplýsingar um hvaða kerfi er til skoðunar, hvar kerfið er staðsett í byggingunni, nýjustu viðvaranir
    • Með því að smella á lógói viðskiptavinar efst í hægra horni fer maður beint á forsíðu
Scada02 kerfismynd.PNG

Á neðri myndinni hægra megin er dæmigerð kerfismynd fyrir hitakerfi. Nánari leiðbeiningar um notkun skjámyndakerfis er að finna í bálki um kerfiráð.