Síritun

From
Revision as of 10:26, 19 August 2022 by Kristjan (talk | contribs) (Created page with "File:Skraningar01.PNG Kerfið býður upp á að gagnaskráningar séu skoðaðar frá gangsetningu kerfisins. Öll helstu mæligildi og stýrimerki eru skráð í sífel...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to: navigation, search

Skraningar01.PNG

Kerfið býður upp á að gagnaskráningar séu skoðaðar frá gangsetningu kerfisins. Öll helstu mæligildi og stýrimerki eru skráð í sífellu. Þessar upplýsingar eru geymdar í gagnagrunni og er hægt að skoða þær á kerfiráðnum. Með því að smella á hnappnum Skráningar í vinstri valstikunni opnast skjámynd með línuriti. Hægt er að velja nokkur mismunandi skráningarsett með hnöppum sem eru undir línuritinu. Nokkrar sekúndur geta liðið þar til valið kerfi kemur upp á skjáinn vegna þess að stutta stund tekur að lesa upp úr gagnagrunni. Haldið er utan um þróun stýrimerkja nokkur ár aftur í tímann.

Á skráningamynd er hægt að beita ýmsum leiðum til að greina betur það sem fyrir augu ber:

  1. Smella á myndfletinum og fá upp lóðrétta línu. Í upplýsingaglugganum undir línuritinu kemur þá fram nákvæmt gildi á hverjum ferli á þeim tímapunkti sem valinn er
  2. Tvísmella á myndfletinum til að skruna fram og aftur í tímann (nota örvar á tækjastiku) og til að þysja inn (halda inni SHIFT og velja myndbrot til stækkunar).
  3. Tvísmella á tímaásnum til að stökkva beint á ákveðna dagsetningu eða til að breyta lengd tímabilsins sem skoðað er hverju sinni.
  4. Hægrismella á penna í listanum undir myndinni til að fela penna (Options - Visible), gera penna feitletraðan (Edit - Width) eða breyta pennum á annan hátt.