Difference between revisions of "Hreinsikerfi sundlaugakerfa"
(→Sandsíur) |
|||
Line 1: | Line 1: | ||
[[File:Sandsiur.png|right|500px|Sandsíur með loftstýrðum skiptilokum]] | [[File:Sandsiur.png|right|500px|Sandsíur með loftstýrðum skiptilokum]] | ||
− | Flestar sundlaugar hafa hringrásarkerfi þar sem vatni frá lauginni er dælt í gegnum varmaskipta og hreinsikerfi áður en það fer aftur til laugarinnar, þannig helst vatnið hreint og við réttan hita. | + | Flestar sundlaugar hafa hringrásarkerfi þar sem vatni frá lauginni er dælt í gegnum varmaskipta og hreinsikerfi áður en það fer aftur til laugarinnar, þannig helst vatnið hreint og við réttan hita. Yfirleitt er klór bætt í vatnið til sótthreinsunar. |
== Sandsíur == | == Sandsíur == | ||
Line 9: | Line 9: | ||
Sandurinn í síunum er hreinsaður reglulega til þess að tryggja hringrás laugarvatns og hreinsigetu síanna. Þessi aðgerð er kölluð '''bakskolun'''. Við bakskolun er streymi vatnsins í gegnum síuna snúið við, vatninu er dælt að neðan upp í gegnum sandinn og við það losna óhreinindi og lyftast upp úr sandinum. Óhreinindunum er í þessum fasa dælt út í skólp. Bakskolun er framkvæmd nokkrum sinnum í mánuði. Með stjórnlokum á síunni er hægt að sjálfvirknivæða bakskolunina þannig að hún fari fram t.d. á nóttunni einu sinni í viku. | Sandurinn í síunum er hreinsaður reglulega til þess að tryggja hringrás laugarvatns og hreinsigetu síanna. Þessi aðgerð er kölluð '''bakskolun'''. Við bakskolun er streymi vatnsins í gegnum síuna snúið við, vatninu er dælt að neðan upp í gegnum sandinn og við það losna óhreinindi og lyftast upp úr sandinum. Óhreinindunum er í þessum fasa dælt út í skólp. Bakskolun er framkvæmd nokkrum sinnum í mánuði. Með stjórnlokum á síunni er hægt að sjálfvirknivæða bakskolunina þannig að hún fari fram t.d. á nóttunni einu sinni í viku. | ||
+ | |||
+ | == Notkun klórs == | ||
+ | |||
== Meiri fróðleikur == | == Meiri fróðleikur == | ||
Ákaflega fróðleg grein birtist í Gangverki, fréttabréfi VST, 2. tbl. 2. árgangur, nóvember 2001 '''[[Media:Gangverk_hreinsun_laugakerfa.pdf|Hreinsun laugarvatns]]'''. | Ákaflega fróðleg grein birtist í Gangverki, fréttabréfi VST, 2. tbl. 2. árgangur, nóvember 2001 '''[[Media:Gangverk_hreinsun_laugakerfa.pdf|Hreinsun laugarvatns]]'''. |
Revision as of 13:35, 5 June 2024
Flestar sundlaugar hafa hringrásarkerfi þar sem vatni frá lauginni er dælt í gegnum varmaskipta og hreinsikerfi áður en það fer aftur til laugarinnar, þannig helst vatnið hreint og við réttan hita. Yfirleitt er klór bætt í vatnið til sótthreinsunar.
Sandsíur
Algengast er að nota sandsíur til hreinsunar á laugarvatninu. Sandsíur eru stórir tankar sem eru rúmlega hálffullir af fínum sandi. Hringrásardælur dæla laugarvatninu að ofanverðu inn í síurnar og þegar vatnið þrýstist í gegnum sandinn þá sitja óhreinindi úr vatninu eftir. Vatnið heldur áfram í gegnum sandinn og fer að neðan út úr síunni og aftur til laugar.
Bakskolun
Óhreinindi úr laugarvatninu situr eftir í sandinum og síurnar þéttast smám saman. Hægt er að mæla hreinleika sandsins með mismunaþrýstinema. Þá er mældur þrýstingur í síunni fyrir ofan sandinn og fyrir neðan sandinn. Þegar sandurinn verður óhreinn (þéttur) þá eykst mismunurinn á þrýstingi fyrir ofan og neðan sandinn. Hægt er að vakta mismunaþrýstinginn í stýrikerfi laugarinnar og jafnvel nota mismunaþrýstinginn sem skilyrði fyrir sjálfvirkri bakskolun.
Sandurinn í síunum er hreinsaður reglulega til þess að tryggja hringrás laugarvatns og hreinsigetu síanna. Þessi aðgerð er kölluð bakskolun. Við bakskolun er streymi vatnsins í gegnum síuna snúið við, vatninu er dælt að neðan upp í gegnum sandinn og við það losna óhreinindi og lyftast upp úr sandinum. Óhreinindunum er í þessum fasa dælt út í skólp. Bakskolun er framkvæmd nokkrum sinnum í mánuði. Með stjórnlokum á síunni er hægt að sjálfvirknivæða bakskolunina þannig að hún fari fram t.d. á nóttunni einu sinni í viku.
Notkun klórs
Meiri fróðleikur
Ákaflega fróðleg grein birtist í Gangverki, fréttabréfi VST, 2. tbl. 2. árgangur, nóvember 2001 Hreinsun laugarvatns.