Difference between revisions of "Síritun"
m (Kristjan moved page Skráningar to Síritun) |
|||
Line 9: | Line 9: | ||
# Hægrismella á penna í listanum undir myndinni til að fela penna (Options - Visible), gera penna feitletraðan (Edit - Width) eða breyta pennum á annan hátt. | # Hægrismella á penna í listanum undir myndinni til að fela penna (Options - Visible), gera penna feitletraðan (Edit - Width) eða breyta pennum á annan hátt. | ||
− | == Flytja út gögn == | + | === Flytja út gögn === |
[[File:Trend_export.PNG|right|600px|Útflutningur gagna]] | [[File:Trend_export.PNG|right|600px|Útflutningur gagna]] | ||
Hægt er að flytja gögn úr skráningaglugganum í textaskrá ef óskað er eftir nánari skoðun, t.d. í töflureikni. Til þess að flytja út gögn er tvísmellt á myndfletinum og í hjálparstikunni sem kemur upp er ýtt á takkann ''Statistics'' (sjá neðri mynd til hægri). Því næst er textaskrá (CSV-snið) vistuð með því að smella á ''Save''. Hægt er að afrita skrána frá kerfiráði yfir á eigin PC-tölvu notanda þar sem hægt er að vinna frekar með CSV-skrána, t.d. með Excel aðgerðinni ''Text to Columns''. | Hægt er að flytja gögn úr skráningaglugganum í textaskrá ef óskað er eftir nánari skoðun, t.d. í töflureikni. Til þess að flytja út gögn er tvísmellt á myndfletinum og í hjálparstikunni sem kemur upp er ýtt á takkann ''Statistics'' (sjá neðri mynd til hægri). Því næst er textaskrá (CSV-snið) vistuð með því að smella á ''Save''. Hægt er að afrita skrána frá kerfiráði yfir á eigin PC-tölvu notanda þar sem hægt er að vinna frekar með CSV-skrána, t.d. með Excel aðgerðinni ''Text to Columns''. |
Revision as of 09:25, 7 February 2023
Kerfið býður upp á að gagnaskráningar séu skoðaðar frá gangsetningu kerfisins. Öll helstu mæligildi og stýrimerki eru skráð í sífellu. Þessar upplýsingar eru geymdar í gagnagrunni og er hægt að skoða þær á kerfiráðnum. Með því að smella á hnappnum Skráningar í vinstri valstikunni opnast skjámynd með línuriti. Hægt er að velja nokkur mismunandi skráningarsett með hnöppum sem eru undir línuritinu. Nokkrar sekúndur geta liðið þar til valið kerfi kemur upp á skjáinn vegna þess að stutta stund tekur að lesa upp úr gagnagrunni. Haldið er utan um þróun stýrimerkja nokkur ár aftur í tímann.
Á skráningamynd er hægt að beita ýmsum leiðum til að greina betur það sem fyrir augu ber:
- Smella á myndfletinum og fá upp lóðrétta línu. Í upplýsingaglugganum undir línuritinu kemur þá fram nákvæmt gildi á hverjum ferli á þeim tímapunkti sem valinn er
- Tvísmella á myndfletinum til að skruna fram og aftur í tímann (nota örvar á tækjastiku) og til að þysja inn (halda inni SHIFT og velja myndbrot til stækkunar).
- Tvísmella á tímaásnum til að stökkva beint á ákveðna dagsetningu eða til að breyta lengd tímabilsins sem skoðað er hverju sinni.
- Hægrismella á penna í listanum undir myndinni til að fela penna (Options - Visible), gera penna feitletraðan (Edit - Width) eða breyta pennum á annan hátt.
Flytja út gögn
Hægt er að flytja gögn úr skráningaglugganum í textaskrá ef óskað er eftir nánari skoðun, t.d. í töflureikni. Til þess að flytja út gögn er tvísmellt á myndfletinum og í hjálparstikunni sem kemur upp er ýtt á takkann Statistics (sjá neðri mynd til hægri). Því næst er textaskrá (CSV-snið) vistuð með því að smella á Save. Hægt er að afrita skrána frá kerfiráði yfir á eigin PC-tölvu notanda þar sem hægt er að vinna frekar með CSV-skrána, t.d. með Excel aðgerðinni Text to Columns.