Difference between revisions of "Prófanir og gangsetning"

From
Jump to: navigation, search
(Prófanir)
(Gangsetning)
Line 10: Line 10:
  
 
== Gangsetning ==
 
== Gangsetning ==
Þegar I/O prófunum er lokið er stýring virkjuð fyrir eitt kerfi í einu og virknin prófuð og staðfest. Gangsetningarfasinn getur tekið nokkra daga, kerfin eru með öðrum orðum ekki komin með heildarvirkni strax eftir I/O prófanir.
+
Þegar I/O prófunum er lokið er stýring virkjuð fyrir eitt kerfi í einu og virknin prófuð og staðfest. Kerfin eru með öðrum orðum ekki komin með heildarvirkni strax eftir I/O prófanir. Í gangsetningarfasa er skjámyndakerfið líka prófað og lagað betur að verkefninu.
  
Í gangsetningarfasa er skjámyndakerfið líka prófað og lagað betur að verkefninu.
+
Gangsetningarfasinn getur tekið nokkra daga en lengist verulega ef mikið er óklárt við upphaf prófana.
  
 
== Tékklisti ==
 
== Tékklisti ==

Revision as of 09:10, 12 September 2022

Iðnaðartækni kemur yfirleitt á verkstað undir lok verktímabils. Þá á allur tæknibúnaður og öll tæknikerfi að vera tilbúinn til prófana. Þegar verk eru unnin á skipulegan hátt gengur gangsetningin fljótt og vel fyrir sig.

Prófanir

Prófanir á verkstað

Fyrsta verkefni Iðnaðartækni á verkstað er að prófa merki til og frá öllum tækjum (I/O prófanir). Í þessum fasa er hvert tæki fyrir sig prófað og staðfest að rétt tæki sé tengt við réttan inngang í stjórntöflu. Þetta er hægt að gera t.d. með því að aftengja/tengja nema, keyra stjórnloka í endastöður, gefa ræsimerki út á mótora og staðfesta af/á merki frá tvístöðutækjum. Þetta er ekki prófun á heildarvirkni kerfa enda hefur á þessu stigi engin stýring verið virkjuð.

Í prófunarfasa þurfa tæknilegir verktakar að vera til taks; rafvirki, pípari og blikkari. Rafvirki þarf að fylgja Iðnaðartækni við prófun á hverjum punkti og aðrir verktakar gætu þurft að skýra út virkni síns búnaðar eða leiðrétta uppsetningu.

Tímalengd prófunarfasa fer eftir því hversu tilbúið kerfið er þegar prófanir hefjast. Prófunarfasi getur tekið allt frá nokkrum klukkutímum (ef allt er klárt - sjá lista að neðan) upp í nokkrar vikur ef mikið er óklárt.

Gangsetning

Þegar I/O prófunum er lokið er stýring virkjuð fyrir eitt kerfi í einu og virknin prófuð og staðfest. Kerfin eru með öðrum orðum ekki komin með heildarvirkni strax eftir I/O prófanir. Í gangsetningarfasa er skjámyndakerfið líka prófað og lagað betur að verkefninu.

Gangsetningarfasinn getur tekið nokkra daga en lengist verulega ef mikið er óklárt við upphaf prófana.

Tékklisti

Hvað þarf að vera tilbúið til þess að prófanir og gangsetning gangi vel:

  • Allur jaðarbúnaður settur upp og tengdur við stjórntöflu.
    • Ekki tengja í töflu fyrr en tengt hefur verið á jaðarbúnaði
  • Allur jaðarbúnaður merktur með kerfisheiti.
  • Modbus búnaður stilltur með rétta adressu og samskiptahraða. Sjá nánar í kafla um Modbus.
    • Modbus netið skrásett af rafverktaka í lista með röð tækja á brautinni.
    • Modbus strengir merktir í báða enda þannig að ljóst sé hvaða tæki séu næst á undan og eftir.
  • Loftræsisamstæður tilbúnar, stilltar og klárar fyrir ræsingu.
  • Stjórntafla yfirfarin af rafvirkja og tilbúin til spennusetningar.
  • Opið fyrir heitt og kalt vatn að öllum kerfum.
  • Frítt aðgengi að öllum jaðarbúnaði. Ekki má loka búnað inni í vegg eða lofti fyrr en hann hefur verið prófaður.
  • Tækjanet tilbúið með allar stjórntölvur og I/O einingar á neti.
    • VPN tenging milli Iðnaðartækni og tækjanets virk.
    • Opinn eldveggur milli kerfiráðar og tækjanets, sjá nánar í kafla um uppsetningu netkerfis.

Ef prófanir og gangsetning fara fram í fleiri áföngum er hætta á að verktakar missi yfirsýn og að verkið sé ekki almennilega klárað. Slíkt niðurbrot í lokafasanum kostar alla verktaka mikinn tíma og kostnaðarsaman tvíverknað.