Difference between revisions of "Samskipti"
| (4 intermediate revisions by the same user not shown) | |||
| Line 1: | Line 1: | ||
| − | [[File: | + | [[File:Bms_comms.png|right|600px|Samskipti frá jaðarbúnaði til skjámyndakerfis]] |
| − | + | Ýmsar samskiptaleiðir eru nýttar í uppbyggingu stjórnkerfa. Á lægri stigum - nær jaðarbúnaði - er oftast notast við seríal samskipti en á hærri stigum er oftast notast við ethernet samskipti. | |
| − | + | Þjónn skjámyndakerfisins er gjarnan kallaður [[kerfiráður]] og getur verið venjuleg tölva en fyrir stærri kerfi er kerfiráður ósjaldan settur upp á sýndarþjóni. Hlutverk kerfiráðar er fjölþætt, m.a.: | |
| − | * | + | * eiga samskipti við stjórnbúnað á lægri stigum |
| − | * | + | * sírita breytur frá stjórnbúnaði (t.d. hitastig, staða stjórnloka, þrýstingur) |
| − | * | + | * vakta valdar breytur og gefa út viðvaranir ef frávik verða óeðlileg |
| + | * veita notendum skjámyndir sem kallað er eftir | ||
| + | * senda tölvupóst eða tilkynningar til annarra kerfa | ||
| − | Á | + | Á myndinni hér til hliðar eru sýndar samskiptaleiðir frá jaðarbúnaði til skjámyndakerfis, þetta eru í raun meiri töfrar heldur en flestir notendur kerfanna gera sér grein fyrir. Tökum nokkur dæmi: |
| + | * Jaðarbúnaður með seríal-samskipti - t.d. flæðilokur (VAV) - eiga samskipti á Modbus RTU braut. [[Modbus|Sjá nánar um Modbus í annarri grein]] Margar flæðilokur eru tengdar saman á samskiptabrautina sem endar í sérstakri gátt (Modbus RTU/TCP gateway) sem breytir seríal samskiptunum (RS485) í ethernet samskipti (TCP/IP). Ethernet-hlið Modbus-gáttarinnar tengist inn á staðarnet og þannig getur kerfiráður kallað eftir upplýsingum frá einstökum flæðilokum í gegnum gáttina. Hið sama gildir um herbergisregla (e. room controllers), orkumæla og ýmis önnur tæki sem notast við Modbus samskiptaháttinn. | ||
| + | * Iðntölvur tengjast ýmsum jaðarbúnaði eins og lýst er víða á þessum fræðsluvef. Iðntölvurnar geta átt samskipti við kerfiráð á ethernet-samskiptabraut og getur þá verið um ýmsa samskiptahætti að ræða, t.d. Modbus TCP eða OPC. Í gegnum þessi samskipti eru lifandi gögn frá iðntölvum (og þar með jaðarbúnaði) birt í skjámyndum og notendum gert kleift að breyta stillingum, kveikja/slökkva á kerfum, skoða sögulega hegðun kerfa o.s.frv. | ||
| + | * Loftræsisamstæður, varmadælur og slík stærri kerfi hafa gjarnan innbyggðan samskiptaþjón og geta tengst kerfiráð í gegnum staðarnetið. Þá er hægt að setja upp samskipti við þessi tæki á kerfiráð og skilgreina hvaða breytur á að birta og vakta í skjámyndakerfinu. Þannig verða til lifandi kerfismyndir sem sýna t.d. hegðun loftræsisamstæðu í rauntíma og einnig er hægt að breyta ýmsum stillingum í gegnum þetta sama samskiptaviðmót. | ||
| − | [[Uppsetning netkerfis | + | Í nýjum kerfum Iðnaðartækni er aðgangur notenda að skjámyndakerfinu í gegnum hefðbundinn vafra (t.d. Chrome eða Edge). Uppsetning og viðhald skjámynda er einföld og skilvirk þegar skjámyndum er veitt til notenda í gegnum vafra. Með slíkri högun þurfa notendur ekki að setja upp sérstakan hugbúnað á sínum tölvum og utanumhald skjámynda er miðlægt, þ.e. breytingar eru gerðar á einum stað og taka samstundis gildi hjá öllum notendum. |
| + | |||
| + | Tengdar greinar: | ||
| + | * [[Uppsetning netkerfis]] | ||
| + | * [[Kerfiráður]] | ||
Latest revision as of 23:14, 27 February 2026
Ýmsar samskiptaleiðir eru nýttar í uppbyggingu stjórnkerfa. Á lægri stigum - nær jaðarbúnaði - er oftast notast við seríal samskipti en á hærri stigum er oftast notast við ethernet samskipti.
Þjónn skjámyndakerfisins er gjarnan kallaður kerfiráður og getur verið venjuleg tölva en fyrir stærri kerfi er kerfiráður ósjaldan settur upp á sýndarþjóni. Hlutverk kerfiráðar er fjölþætt, m.a.:
- eiga samskipti við stjórnbúnað á lægri stigum
- sírita breytur frá stjórnbúnaði (t.d. hitastig, staða stjórnloka, þrýstingur)
- vakta valdar breytur og gefa út viðvaranir ef frávik verða óeðlileg
- veita notendum skjámyndir sem kallað er eftir
- senda tölvupóst eða tilkynningar til annarra kerfa
Á myndinni hér til hliðar eru sýndar samskiptaleiðir frá jaðarbúnaði til skjámyndakerfis, þetta eru í raun meiri töfrar heldur en flestir notendur kerfanna gera sér grein fyrir. Tökum nokkur dæmi:
- Jaðarbúnaður með seríal-samskipti - t.d. flæðilokur (VAV) - eiga samskipti á Modbus RTU braut. Sjá nánar um Modbus í annarri grein Margar flæðilokur eru tengdar saman á samskiptabrautina sem endar í sérstakri gátt (Modbus RTU/TCP gateway) sem breytir seríal samskiptunum (RS485) í ethernet samskipti (TCP/IP). Ethernet-hlið Modbus-gáttarinnar tengist inn á staðarnet og þannig getur kerfiráður kallað eftir upplýsingum frá einstökum flæðilokum í gegnum gáttina. Hið sama gildir um herbergisregla (e. room controllers), orkumæla og ýmis önnur tæki sem notast við Modbus samskiptaháttinn.
- Iðntölvur tengjast ýmsum jaðarbúnaði eins og lýst er víða á þessum fræðsluvef. Iðntölvurnar geta átt samskipti við kerfiráð á ethernet-samskiptabraut og getur þá verið um ýmsa samskiptahætti að ræða, t.d. Modbus TCP eða OPC. Í gegnum þessi samskipti eru lifandi gögn frá iðntölvum (og þar með jaðarbúnaði) birt í skjámyndum og notendum gert kleift að breyta stillingum, kveikja/slökkva á kerfum, skoða sögulega hegðun kerfa o.s.frv.
- Loftræsisamstæður, varmadælur og slík stærri kerfi hafa gjarnan innbyggðan samskiptaþjón og geta tengst kerfiráð í gegnum staðarnetið. Þá er hægt að setja upp samskipti við þessi tæki á kerfiráð og skilgreina hvaða breytur á að birta og vakta í skjámyndakerfinu. Þannig verða til lifandi kerfismyndir sem sýna t.d. hegðun loftræsisamstæðu í rauntíma og einnig er hægt að breyta ýmsum stillingum í gegnum þetta sama samskiptaviðmót.
Í nýjum kerfum Iðnaðartækni er aðgangur notenda að skjámyndakerfinu í gegnum hefðbundinn vafra (t.d. Chrome eða Edge). Uppsetning og viðhald skjámynda er einföld og skilvirk þegar skjámyndum er veitt til notenda í gegnum vafra. Með slíkri högun þurfa notendur ekki að setja upp sérstakan hugbúnað á sínum tölvum og utanumhald skjámynda er miðlægt, þ.e. breytingar eru gerðar á einum stað og taka samstundis gildi hjá öllum notendum.
Tengdar greinar: