Difference between revisions of "Samskipti"
(Created page with "right|600px|Lifandi mynd af netkerfi Stýrikerfi eru oftar en ekki byggð upp af iðntölvum, I/O einingum og öðrum tækjum á TCP/IP neti (Ethernet)....") |
|||
Line 8: | Line 8: | ||
Á samskiptamyndinni er ennfremur hægt að smella á stjórnskápum til að fá nánari upplýsingar t.d. um staðsetningu, IP-tölu og fleira. | Á samskiptamyndinni er ennfremur hægt að smella á stjórnskápum til að fá nánari upplýsingar t.d. um staðsetningu, IP-tölu og fleira. | ||
+ | |||
+ | [[Uppsetning netkerfis|Sjá nánari upplýsingar um uppsetningu netkerfis í annarri grein]]. |
Latest revision as of 14:58, 29 May 2023
Stýrikerfi eru oftar en ekki byggð upp af iðntölvum, I/O einingum og öðrum tækjum á TCP/IP neti (Ethernet). Í slíkum tilvikum er í skjámyndakerfinu hægt að skoða lifandi mynd af netkerfinu. Þessa mynd fær maður upp með því að velja Samskipti (eða Netkerfi) í valstikunni.
Á þessari mynd er netkerfið teiknað upp með tengingum sem breyta litum eftir því hvort samskipti eru í lagi eða ekki. Ef samskipti við eitthvert tæki eru óvirk verður tengingin rauð og gefin er viðvörun í skjámyndakerfinu. Ýmsar ástæður geta verið fyrir slíku fráviki, m.a.
- Stjórnskápur spennulaus
- Netkapall aftengdur á iðntölvu, sviss eða annars staðar í netkerfinu
- Uppsetningu netkerfisins hefur verið breytt - í þessu tilviki þarf aðstoð tölvudeildarinnar sem stjórnar netkerfinu
Á samskiptamyndinni er ennfremur hægt að smella á stjórnskápum til að fá nánari upplýsingar t.d. um staðsetningu, IP-tölu og fleira.
Sjá nánari upplýsingar um uppsetningu netkerfis í annarri grein.