Difference between revisions of "Samskipti"

From
Jump to: navigation, search
(Created page with "right|600px|Lifandi mynd af netkerfi Stýrikerfi eru oftar en ekki byggð upp af iðntölvum, I/O einingum og öðrum tækjum á TCP/IP neti (Ethernet)....")
 
 
(5 intermediate revisions by the same user not shown)
Line 1: Line 1:
[[File:Samskipti.png|right|600px|Lifandi mynd af netkerfi]]
+
[[File:Bms_comms.png|right|600px|Samskipti frá jaðarbúnaði til skjámyndakerfis]]
Stýrikerfi eru oftar en ekki byggð upp af iðntölvum, I/O einingum og öðrum tækjum á TCP/IP neti (Ethernet). Í slíkum tilvikum er í skjámyndakerfinu hægt að skoða lifandi mynd af netkerfinu. Þessa mynd fær maður upp með því að velja '''Samskipti''' (eða '''Netkerfi''') í valstikunni.
+
Ýmsar samskiptaleiðir eru nýttar í uppbyggingu stjórnkerfa. Á lægri stigum - nær jaðarbúnaði - er oftast notast við seríal samskipti en á hærri stigum er oftast notast við ethernet samskipti.
  
Á þessari mynd er netkerfið teiknað upp með tengingum sem breyta litum eftir því hvort samskipti eru í lagi eða ekki. Ef samskipti við eitthvert tæki eru óvirk verður tengingin rauð og gefin er viðvörun í skjámyndakerfinu. Ýmsar ástæður geta verið fyrir slíku fráviki, m.a.
+
Þjónn skjámyndakerfisins er gjarnan kallaður [[kerfiráður]] og getur verið venjuleg tölva en fyrir stærri kerfi er kerfiráður ósjaldan settur upp á sýndarþjóni. Hlutverk kerfiráðar er fjölþætt, m.a.:
* Stjórnskápur spennulaus
+
* eiga samskipti við stjórnbúnað á lægri stigum
* Netkapall aftengdur á iðntölvu, sviss eða annars staðar í netkerfinu
+
* sírita breytur frá stjórnbúnaði (t.d. hitastig, staða stjórnloka, þrýstingur)
* Uppsetningu netkerfisins hefur verið breytt - í þessu tilviki þarf aðstoð tölvudeildarinnar sem stjórnar netkerfinu
+
* vakta valdar breytur og gefa út viðvaranir ef frávik verða óeðlileg
 +
* veita notendum skjámyndir sem kallað er eftir
 +
* senda tölvupóst eða tilkynningar til annarra kerfa
  
Á samskiptamyndinni er ennfremur hægt að smella á stjórnskápum til að fá nánari upplýsingar t.d. um staðsetningu, IP-tölu og fleira.
+
Á myndinni hér til hliðar eru sýndar samskiptaleiðir frá jaðarbúnaði til skjámyndakerfis, þetta eru í raun meiri töfrar heldur en flestir notendur kerfanna gera sér grein fyrir. Tökum nokkur dæmi:
 +
* Jaðarbúnaður með seríal-samskipti - t.d. flæðilokur (VAV) - eiga samskipti á Modbus RTU braut. [[Modbus|Sjá nánar um Modbus í annarri grein]] Margar flæðilokur eru tengdar saman á samskiptabrautina sem endar í sérstakri gátt (Modbus RTU/TCP gateway) sem breytir seríal samskiptunum (RS485) í ethernet samskipti (TCP/IP). Ethernet-hlið Modbus-gáttarinnar tengist inn á staðarnet og þannig getur kerfiráður kallað eftir upplýsingum frá einstökum flæðilokum í gegnum gáttina. Hið sama gildir um herbergisregla (e. room controllers), orkumæla og ýmis önnur tæki sem notast við Modbus samskiptaháttinn.
 +
* Iðntölvur tengjast ýmsum jaðarbúnaði eins og lýst er víða á þessum fræðsluvef. Iðntölvurnar geta átt samskipti við kerfiráð á ethernet-samskiptabraut og getur þá verið um ýmsa samskiptahætti að ræða, t.d. Modbus TCP eða OPC. Í gegnum þessi samskipti eru lifandi gögn frá iðntölvum (og þar með jaðarbúnaði) birt í skjámyndum og notendum gert kleift að breyta stillingum, kveikja/slökkva á kerfum, skoða sögulega hegðun kerfa o.s.frv.
 +
* Loftræsisamstæður, varmadælur og slík stærri kerfi hafa gjarnan innbyggðan samskiptaþjón og geta tengst kerfiráð í gegnum staðarnetið. Þá er hægt að setja upp samskipti við þessi tæki á kerfiráð og skilgreina hvaða breytur á að birta og vakta í skjámyndakerfinu. Þannig verða til lifandi kerfismyndir sem sýna t.d. hegðun loftræsisamstæðu í rauntíma og einnig er hægt að breyta ýmsum stillingum í gegnum þetta sama samskiptaviðmót.
 +
 
 +
Í nýjum kerfum Iðnaðartækni er aðgangur notenda skjámyndakerfinu í gegnum hefðbundinn vafra (t.d. Chrome eða Edge). Uppsetning og viðhald skjámynda er einföld og skilvirk þegar skjámyndum er veitt til notenda í gegnum vafra. Með slíkri högun þurfa notendur ekki að setja upp sérstakan hugbúnað á sínum tölvum og utanumhald skjámynda er miðlægt, þ.e. breytingar eru gerðar á einum stað og taka samstundis gildi hjá öllum notendum.
 +
 
 +
Tengdar greinar:
 +
* [[Uppsetning netkerfis]]
 +
* [[Kerfiráður]]

Latest revision as of 23:14, 27 February 2026

Samskipti frá jaðarbúnaði til skjámyndakerfis

Ýmsar samskiptaleiðir eru nýttar í uppbyggingu stjórnkerfa. Á lægri stigum - nær jaðarbúnaði - er oftast notast við seríal samskipti en á hærri stigum er oftast notast við ethernet samskipti.

Þjónn skjámyndakerfisins er gjarnan kallaður kerfiráður og getur verið venjuleg tölva en fyrir stærri kerfi er kerfiráður ósjaldan settur upp á sýndarþjóni. Hlutverk kerfiráðar er fjölþætt, m.a.:

  • eiga samskipti við stjórnbúnað á lægri stigum
  • sírita breytur frá stjórnbúnaði (t.d. hitastig, staða stjórnloka, þrýstingur)
  • vakta valdar breytur og gefa út viðvaranir ef frávik verða óeðlileg
  • veita notendum skjámyndir sem kallað er eftir
  • senda tölvupóst eða tilkynningar til annarra kerfa

Á myndinni hér til hliðar eru sýndar samskiptaleiðir frá jaðarbúnaði til skjámyndakerfis, þetta eru í raun meiri töfrar heldur en flestir notendur kerfanna gera sér grein fyrir. Tökum nokkur dæmi:

  • Jaðarbúnaður með seríal-samskipti - t.d. flæðilokur (VAV) - eiga samskipti á Modbus RTU braut. Sjá nánar um Modbus í annarri grein Margar flæðilokur eru tengdar saman á samskiptabrautina sem endar í sérstakri gátt (Modbus RTU/TCP gateway) sem breytir seríal samskiptunum (RS485) í ethernet samskipti (TCP/IP). Ethernet-hlið Modbus-gáttarinnar tengist inn á staðarnet og þannig getur kerfiráður kallað eftir upplýsingum frá einstökum flæðilokum í gegnum gáttina. Hið sama gildir um herbergisregla (e. room controllers), orkumæla og ýmis önnur tæki sem notast við Modbus samskiptaháttinn.
  • Iðntölvur tengjast ýmsum jaðarbúnaði eins og lýst er víða á þessum fræðsluvef. Iðntölvurnar geta átt samskipti við kerfiráð á ethernet-samskiptabraut og getur þá verið um ýmsa samskiptahætti að ræða, t.d. Modbus TCP eða OPC. Í gegnum þessi samskipti eru lifandi gögn frá iðntölvum (og þar með jaðarbúnaði) birt í skjámyndum og notendum gert kleift að breyta stillingum, kveikja/slökkva á kerfum, skoða sögulega hegðun kerfa o.s.frv.
  • Loftræsisamstæður, varmadælur og slík stærri kerfi hafa gjarnan innbyggðan samskiptaþjón og geta tengst kerfiráð í gegnum staðarnetið. Þá er hægt að setja upp samskipti við þessi tæki á kerfiráð og skilgreina hvaða breytur á að birta og vakta í skjámyndakerfinu. Þannig verða til lifandi kerfismyndir sem sýna t.d. hegðun loftræsisamstæðu í rauntíma og einnig er hægt að breyta ýmsum stillingum í gegnum þetta sama samskiptaviðmót.

Í nýjum kerfum Iðnaðartækni er aðgangur notenda að skjámyndakerfinu í gegnum hefðbundinn vafra (t.d. Chrome eða Edge). Uppsetning og viðhald skjámynda er einföld og skilvirk þegar skjámyndum er veitt til notenda í gegnum vafra. Með slíkri högun þurfa notendur ekki að setja upp sérstakan hugbúnað á sínum tölvum og utanumhald skjámynda er miðlægt, þ.e. breytingar eru gerðar á einum stað og taka samstundis gildi hjá öllum notendum.

Tengdar greinar: