Reglun
Reglun er notuð í stýritækni til að viðhalda réttu ástandi í einhverju ferli. Reglir er reikniaðgerð í stýrikerfinu sem les inn forsendur (óskgildi og raungildi) og breytir stýrimerki til þess að halda raungildi í óskgildinu. Dæmi
- Hiti í hitahringrás sem stýrt er með stjórnloka
- Þrýstingur í loftræsistokk sem stýrt er með hraðastýrðum blásara
- Hiti í loftræsistokk sem stýrt er með stjórnloka á eftirhitara
Reglirinn ber saman óskgildi og raungildi og notar mismun þessara stærða til að breyta útgangi sínum. Útgangurinn (oftast hliðrænn útgangur) stýrir svo viðkomandi jaðartæki sem gefur orku inn í ferlið.