Viðbrögð við bilunum

From
Revision as of 10:33, 19 August 2022 by Kristjan (talk | contribs) (Created page with "== Straumleysi == Ef straumur fer af kerfinu hættir það að vinna en þegar rafmagn kemur á að nýju fer kerfið sjálft af stað aftur. Þó er ráðlegt að yfirfara ö...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to: navigation, search

Straumleysi

Ef straumur fer af kerfinu hættir það að vinna en þegar rafmagn kemur á að nýju fer kerfið sjálft af stað aftur. Þó er ráðlegt að yfirfara öll kerfi eftir straumleysi til að ganga úr skugga um að þau hegði sér rétt og að mæligildi séu rétt.

Tölva frýs

Ef kerfiráður frýs skal hann endurræstur. Ef ekki er hægt að endurræsa með hefðbundnum aðferðum skal halda ræsitakka tölvunnar inni í 5 sekúndur þar til tölvan slekkur á sér. Þá er hægt að ræsa hana aftur.

Kerfi óáreiðanlegt

Ef kerfi hegðar sér ófyrirsjáanlega eða nær ekki réttri stöðu er gott að nota kerfismynd á kerfiráði til aðstoðar við greiningu vandamálsins. Ef vandamálið er t.d. of lágur hiti þarf að athuga:

  1. Hvert er óskgildi hitans? Stemmir það við hitastigið skv. kerfiráð?
  2. Hvert er hitastigið skv. kerfiráð? Stemmir það við raunverulegt gildi á hitanema?
  3. Hvert er stýrimerki á stjórnloka skv. kerfiráð? Stemmir það við raunverulega stöðu mótorloka?
  4. Rennur heitt vatn um mótorlokann? Eru handlokar opnir?

Með þessari nálgun er oft hægt að komast að rótum vandans og spara tíma og fyrirhöfn.

Aðrar bilanir

Viðbrögð við öðrum viðvörunum sem koma upp í kerfinu eru sýnd í viðvaranaglugga kerfiráðsins. Ef ástæða bilunar er óljós skal haft samband við verktaka tölvustýringar.