Stafræn og hliðræn merki

From
Revision as of 10:12, 6 September 2022 by Kristjan (talk | contribs) (Hliðræn inngangsmerki - AI)
Jump to: navigation, search
Tenging stafræns merkis frá þrýstiliða
Tenging stýringar til hliðræns stjórnloka
Tengingar á stýrimerkjum til og frá mótor. Stafrænir inngangar eru notaðir til að ræsa dælu, stafrænir útgangar til eftirlits og hliðrænn inngangur til stýringar á snúningshraða

Stýrimerki til og frá iðntölvu eru yfirleitt tengd við jaðartæki með rafmagnsstrengjum. Þetta eru stundum kölluð harðvíruð merki eða I/O (æjó - Input/Output) merki. Inngangsmerki til iðntölvu segja til um stöðu jaðartækja en útgangsmerki frá iðntölvu gefa skipanir til jaðartækja.

Stafræn merki - Digital

Stafræn merki (digital) hafa þann eiginleika að vera annað hvort á eða af.

Stafræn inngangsmerki - DI

Einfalt dæmi um stafrænt inngangsmerki er AF/Á rofi í töflu sem hefur eina og aðeins eina stöðu. Frá slíkum rofa er tengt inn á iðntölvu og hún skynjar hvort notandi vilji að kerfið sé í gangi eða ekki. Fjölmörg önnur dæmi er að finna í flestum kerfum þar sem eru t.d. mismunaþrýstiliðar yfir síu (sía hrein eða óhrein) eða hitaliði í vatnsrás (vatn yfir eða undir mörkum). Stafræn inngangsmerki hafa með öðrum orðum litla upplausn.

Villuleit

Ef stafrænt merki skilar sér ekki til iðntölvu er hægt að rekja villuna:

  1. Athuga hvort inngangur í stjórnskáp sé víraður rétt, t.d. með því að slaufa yfir tilheyrandi raðtengi skv. tengimynd. Venjulega er hægt að lesa stöðu inngangsins af viðkomandi einingu á iðntölvunni.
  2. Ef merkið er vírað rétt í stjórnskáp þarf að athuga hvort um réttan streng sé að ræða með því að skammhleypa fjærendanum á kaplinum og staðfesta að merki skilar sér til iðntölvu.
  3. Ef strengurinn er réttur þarf að athuga hvort jaðartækið sé að gefa út það merki sem óskað er með því að mæla uppgefna útganga á viðkomandi búnaði, útgangur á að gefa 0 Ohm viðnám þegar hann er á og óendanlegt viðnám þegar hann er af.

Stafræn útgangsmerki - DO

Stafræn merki geta einnig farið frá iðntölvu til að stýra jaðartækjum. Dæmi um stafræn útgangsmerki eru ræsing á dælu og opnun á tvístöðuloka.

Villuleit

Ef stafrænt merki skilar sér ekki frá iðntölvu til jaðarbúnaðar er hægt að nota svipaða aðferð og með stafræn inngangsmerki, þ.e. athuga hvort jaðarbúnaður svari skammhlaupi á uppgefnum stýriinngangi, hvort skammhlaup á stýristreng í töflu gefi svar á jaðarbúnaði og að lokum hvort útgangur í stjórnskáp gefi lokaða snertu (0 Ohm á raðtengjum þegar útgangur er á). Hér gæti Iðnaðartækni þurft að koma að málum til að þvinga útgang iðntölvunnar í prófunarskyni.

Hliðræn merki - Analog

Hliðræn merki eru stiglaus merki til og frá iðntölvu. Þeim er miðlað á ýmsan hátt, t.d. með 0-10V, 4-20mA eða Pt1000 viðnámi. Hliðræn merki eru notuð til reglunar og eftirlits.

Hliðræn inngangsmerki - AI

Hliðræn inngangsmerki eru t.d. hitanemar, þrýstinemar og CO2 nemar. Slík jaðartæki gefa nákvæmar upplýsingar um stöðu í kerfinu og þessar upplýsingar eru notaðar bæði til reglunar og eftirlits. Hliðrænir nemar hafa mismunandi viðmót, sumir miðla mæligildi sínu með 0-10V, aðrir með 4-20mA, sumir með viðnámi (t.d. Pt1000) o.s.frv.

Skölun

Fyrir rétta virkni kerfis er mikilvægt að nemar séu skalaðir rétt í iðntölvu. Þá þurfa að liggja fyrir upplýsingar um mælisvið nemans. Þessar upplýsingar eru gjarnan merktar á sjálfan nemann, í tengiboxi, í kassanum eða á tækjablöðum. Þessum upplýsingum þarf að halda til haga fyrir stjórnkerfisverktaka. Hér að neðan eru tvö dæmi um skölun á nemum.

Þrýstinemi með 4-20mA merki skalað 0-10 bar
Sambyggður hita og CO2-nemi með 0-10V merki sköluð 0...+50C og 0-2000ppm

Villuleit

Hliðræn útgangsmerki - AO

Hliðræn útgangsmerki eru notuð t.d. til stýringar á opnun stjórnloka (hversu mikið magn heits vatns á að fara í vatnsrás) og stýringar á snúningshraða mótors. Hliðræn útgangsmerki eru ásamt hliðrænum inngangsmerkjum notuð til reglunar.

Villuleit