Difference between revisions of "Flæðilokur"
(Created page with "right|500px|Loftræsisamstæða með varmahjóli Flæðilokur (VAV - Variable Air Volume) eru lokur með stiglausri opnun og loftmagnsmælingu sem settar er...") |
|||
Line 1: | Line 1: | ||
− | [[File:Vav01.PNG|right| | + | [[File:Vav01.PNG|right|300px|Flæðiloka með mótor]] |
Flæðilokur (VAV - Variable Air Volume) eru lokur með stiglausri opnun og loftmagnsmælingu sem settar eru í loftræsistokka þar sem óskað er eftir stýringu á loftmagni. | Flæðilokur (VAV - Variable Air Volume) eru lokur með stiglausri opnun og loftmagnsmælingu sem settar eru í loftræsistokka þar sem óskað er eftir stýringu á loftmagni. | ||
Hægt er að nota loftmagn til að regla loftgæði (eftir CO2 nema) eða hitastig (eftir hitanema) en einnig getur þurft að nota flæðilokur til að halda réttum mismunaþrýstingi í rýmum með sérútsogi, t.d. í eldhúsum. | Hægt er að nota loftmagn til að regla loftgæði (eftir CO2 nema) eða hitastig (eftir hitanema) en einnig getur þurft að nota flæðilokur til að halda réttum mismunaþrýstingi í rýmum með sérútsogi, t.d. í eldhúsum. | ||
+ | [[File:VavYfirlit01.PNG|right|400px|Yfirlit yfir flæðilokur í kerfi]] | ||
''' Stýring ''' | ''' Stýring ''' | ||
Revision as of 14:10, 22 August 2022
Flæðilokur (VAV - Variable Air Volume) eru lokur með stiglausri opnun og loftmagnsmælingu sem settar eru í loftræsistokka þar sem óskað er eftir stýringu á loftmagni.
Hægt er að nota loftmagn til að regla loftgæði (eftir CO2 nema) eða hitastig (eftir hitanema) en einnig getur þurft að nota flæðilokur til að halda réttum mismunaþrýstingi í rýmum með sérútsogi, t.d. í eldhúsum.
Stýring
Flæðilokur eru forritaðar til að regla á milli lágmarksloftmagns (Vmin) og hámarksloftmagns (Vmax). Þessi stilligildi eru sett inn í sjálfan mótorinn. Stýring frá ytra kerfi fer fram með því að gefa merki á bilinu 0-100% og keyrir flæðilokan þá á milli Vmin og Vmax. Stýrimerkið er hægt að gefa á ýmsan hátt, t.d. með hliðrænu (0-10V) merki frá iðntölvu eða með Modbus skipunum (0-100%) frá iðntölvu. Með hliðrænni stýringu fást mjög takmarkaðar upplýsingar tilbaka frá lokunni en ef notast er við Modbus stýringu er hægt að skiptast á meiri upplýsingum við lokuna. Á Modbus er t.d. hægt að lesa út loftmagn og opnun loku og með því er einfaldara að greina frávik í rekstri.
Tilheyrandi loftræsisamstæða
Þar sem kerfi er með flæðilokum þarf að stilla tilheyrandi loftræsisamstæðu á þrýstistýringu og óskgildi þrýstings á samstæðunni er stillt þannig að allar flæðilokur geti náð hámarksloftmagni sínu samtímis. Þegar flæðilokur kalla á meira loft opna þær spjaldið og við það fellur þrýstingur í stokkakerfinu og loftræsisamstæðan eykur þá snúningshraða sinn til að halda þrýstingi réttum. Samstæðan dregur svo úr snúningshraða þegar flæðilokurnar þurfa minna loft því lokurnar loka, þrýstingur í stokkum eykst og samstæðan reglar sig niður til að halda réttum þrýstingi. Sjá nánar um virkni loftræsisamstæðna.