Difference between revisions of "Hringrás hita- og kælikerfa"
m |
|||
Line 3: | Line 3: | ||
Til þess að hita og kæla rými þarf að skaffa heitt og kalt vatn að eftirhiturum, ofnum, kæliröftum o.s.frv. Einföld lausn á þessu gæti verið að tengja heitt og kalt vatn beint frá inntaki að tækjunum en það leiðir bæði til orkusóunar og áhættu á meira tjóni ef lagnir gefa sig. Þess vegna eru oftast settir upp varmaskiptar þar sem heitu og köldu vatni er dælt í lokaðri hringrás og hitastiginu á hringrásinni er stýrt með stjórnloka á hitaveitu eða köldu vatni. | Til þess að hita og kæla rými þarf að skaffa heitt og kalt vatn að eftirhiturum, ofnum, kæliröftum o.s.frv. Einföld lausn á þessu gæti verið að tengja heitt og kalt vatn beint frá inntaki að tækjunum en það leiðir bæði til orkusóunar og áhættu á meira tjóni ef lagnir gefa sig. Þess vegna eru oftast settir upp varmaskiptar þar sem heitu og köldu vatni er dælt í lokaðri hringrás og hitastiginu á hringrásinni er stýrt með stjórnloka á hitaveitu eða köldu vatni. | ||
− | Á myndinni hér til hliðar er sýnd dæmigerð hitahringrás. Þar er hitaveitan vinstra megin við varmaskipti og stjórnloki ræður því hversu mikill hiti er fluttur frá hitaveitunni yfir í hringrásina. Meiri opnun á stjórnloka | + | Á myndinni hér til hliðar er sýnd dæmigerð hitahringrás. Þar er hitaveitan vinstra megin við varmaskipti og stjórnloki ræður því hversu mikill hiti er fluttur frá hitaveitunni yfir í hringrásina. Meiri opnun á stjórnloka gefur hærri hita í hringrás. Hægra megin er sjálf hringrásin. Þar er dæla sem heldur hringrásinni á hreyfingu og þar eru hitanemar, í þessu tilfelli er hitastiginu í hringrásinni stýrt eftir óskgildi fyrir framrásarhita. Hringrásin í þessu dæmi skaffar varmaorku fyrir tvær loftræsisamstæður. Hitanemar í bakrás frá varmaskipti og bakrás hringrásarinnar eru til upplýsinga og hægt er að nota þessa nema til að greina hegðun og frávik í kerfinu. |
Í lokuðum hringrásarkerfum er oft settur upp þrýstinemi til þess að fylgjast með því að nægur vökvi sé í hringrásinni. Ef þrýstingur er lægri en 1 bar bendir það til þess að það vanti vökva í hringrásina og þá getur hún ekki flutt þann varma sem til er ætlast. Þá þarf að bæta vökva á hringrásina, það er ýmist gert með handvirkri dælu eða rafmagnsdælu. | Í lokuðum hringrásarkerfum er oft settur upp þrýstinemi til þess að fylgjast með því að nægur vökvi sé í hringrásinni. Ef þrýstingur er lægri en 1 bar bendir það til þess að það vanti vökva í hringrásina og þá getur hún ekki flutt þann varma sem til er ætlast. Þá þarf að bæta vökva á hringrásina, það er ýmist gert með handvirkri dælu eða rafmagnsdælu. | ||
− | Kælihringrás er byggð upp á sama hátt en þá er köldu vatni stýrt að varmaskiptinum eftir óskgildi fyrir hitastig framrásar. Meiri opnun á stjórnloka í kælikerfi | + | Kælihringrás er byggð upp á sama hátt en þá er köldu vatni stýrt að varmaskiptinum eftir óskgildi fyrir hitastig framrásar. Meiri opnun á stjórnloka í kælikerfi gefur lægra hitastig á hringrásinni. |
Revision as of 15:53, 9 January 2023
Til þess að hita og kæla rými þarf að skaffa heitt og kalt vatn að eftirhiturum, ofnum, kæliröftum o.s.frv. Einföld lausn á þessu gæti verið að tengja heitt og kalt vatn beint frá inntaki að tækjunum en það leiðir bæði til orkusóunar og áhættu á meira tjóni ef lagnir gefa sig. Þess vegna eru oftast settir upp varmaskiptar þar sem heitu og köldu vatni er dælt í lokaðri hringrás og hitastiginu á hringrásinni er stýrt með stjórnloka á hitaveitu eða köldu vatni.
Á myndinni hér til hliðar er sýnd dæmigerð hitahringrás. Þar er hitaveitan vinstra megin við varmaskipti og stjórnloki ræður því hversu mikill hiti er fluttur frá hitaveitunni yfir í hringrásina. Meiri opnun á stjórnloka gefur hærri hita í hringrás. Hægra megin er sjálf hringrásin. Þar er dæla sem heldur hringrásinni á hreyfingu og þar eru hitanemar, í þessu tilfelli er hitastiginu í hringrásinni stýrt eftir óskgildi fyrir framrásarhita. Hringrásin í þessu dæmi skaffar varmaorku fyrir tvær loftræsisamstæður. Hitanemar í bakrás frá varmaskipti og bakrás hringrásarinnar eru til upplýsinga og hægt er að nota þessa nema til að greina hegðun og frávik í kerfinu.
Í lokuðum hringrásarkerfum er oft settur upp þrýstinemi til þess að fylgjast með því að nægur vökvi sé í hringrásinni. Ef þrýstingur er lægri en 1 bar bendir það til þess að það vanti vökva í hringrásina og þá getur hún ekki flutt þann varma sem til er ætlast. Þá þarf að bæta vökva á hringrásina, það er ýmist gert með handvirkri dælu eða rafmagnsdælu.
Kælihringrás er byggð upp á sama hátt en þá er köldu vatni stýrt að varmaskiptinum eftir óskgildi fyrir hitastig framrásar. Meiri opnun á stjórnloka í kælikerfi gefur lægra hitastig á hringrásinni.